Dekur fyrir tvo – Sweat spa

16.900kr. 55 min.

Sweat spa getur bætt svefn eftir tímann, getur stuðlað að minni bólgum, bjúg og appelsínuhúð, hjálpar líkamanum að hreinsa út eiturefni/sindurefni auk þess sem þú missir allt að einum lítra af vatni og brennir allt að 1600 kaloríum í hvert skipti.

Þegar þú kemur í Sweat Spa, liggur þú í góðu yfirlæti í jogging galla, í infrared teppi sem er hálfgerður svefnpoki. Sweat Spa tekur 55 mínútur og síðustu 20 mínúturnar reynast mörgum erfiðar. Fyrir framan þig er sjónvarp þar sem þú getur horft á Netflix. Til að ná hámarksárangri mælum við með að hendurnar liggi inni í pokanum allan tímann, fyrir utan þegar þú færð þér vatn. Mikilvægt er að drekka mikið vatn og ef þú stundar reglulega Sweat Spa  auk þess að gæta þess að fá næg steinefni. Ef þér líður þannig að þú sért að brenna á ákveðnum svæðum, skaltu færa þig aðeins til. Við getum komið til þín með kaldan þvottapoka ef þess er óskað, þegar um 15 mínútur eru eftir af tímanum.

Þú mátt búast við að svitna meira en þú hefur nokkurn tímann gert, en ef þú stundar einhvers konar líkamsrækt máttu búast við að svitna meira en venjulega næstu daga á eftir. Ástæðan fyrir því að við erum ekki með sturtur er sú að við mælum ekki með að fara í sturtu fyrr en nokkrum klukkustundum eftir Sweat Spa.

Best er að vera í þægilegum langermabol, langerma buxum og sokkum. Það er mögulegt að leigja jogging galla á staðnum.

Flokkur: